Electric Manicure
Electric Manicure er sérhæft endurmenntunarnámskeið fyrir fagfólk sem vill læra örugga og nútímalega aðferð til að snyrta naglabönd með naglaslípivél. Meðferðin er mild og nákvæm og skilar snyrtilegum naglaböndum, fallegri áferð og vandaðri heildarútkomu – hvort sem er á höndum eða fótum.
Á námskeiðinu lærir þú að:
-
Nota réttu bitana með réttum hraða og handstöðu fyrir mismunandi gerðir naglabanda
-
Þekkja muninn á viðkvæmum, þurrum og eðlilegum naglaböndum og velja aðferð samkvæmt því
-
Vinna með naglaslípivél á öruggan og faglegan hátt
-
Undirbúa náttúrulega nöglina á faglegan hátt
-
Hreinsa og næra naglaböndin með sérhæfðum vörum að lokinni meðferð
-
Nýta meðferðina sem sjálfstæða þjónustu eða sem hluta af annari þjónustu.
Electric Manicure kemur í stað hefðbundinnar mini-manicure meðferðar og eykur fagmennsku, nákvæmni og sjónrænt gildi í þjónustu þinni. Meðferðin tekur einungis um 15 mínútur og gefur þér tækifæri til að auka verðmæti og tekjur með viðbótarþjónustu.
Fyrir hverja?
Snyrtifræðiga og naglafræðiga sem vill læra örugga og faglega notkun naglaslípivélar í snyrtingu naglabanda.
Lengd: 4 klst. námskeið sem skiptist í bóklegt og verklegt
Innifalið:
-
Diplomaskjal við námslok
-
Aðgangur að rafrænu e-learning námskeiði með myndböndum og ítarefni
-
Leiðbeiningar um rétta verkfæranotkun, vörur og vinnulag


